Með allt IORDEN

Við ætlum að tryggja gæði og fjölbreytileika í matvælaframleiðslu

Hvað gerum við og af hverju skiptir það máli?

IORDEN er hagkvæm hugbúnaðar- og vélbúnaðarlausn sem sjálfvirknivæðir skráningu gagna tengdum gæðaeftirliti. Það auðveldar smáframleiðendum úttektir frá eftirlitsaðilum ásamt því að einfalda rekjanleika matvæla ef upp koma smit. Kerfið tengist framleiðsluvélum — þar á meðal notuðum vélum frá mismunandi birgjum — safnar gögnum sjálfkrafa og býr til áreiðanlegar skrár fyrir daglegt gæðaeftirlit sem og ytri úttektir frá eftirlitsaðilum.

Smærri framleiðendur standa frammi fyrir auknum kröfum um matvælaöryggi, án þess þó að hafa sömu tæknilegu innviði, starfsfólk eða fjárhagslegt svigrúm og stærri fyrirtæki. Það hallar því verulega á smáframleiðendur. IORDEN vinnur að því að minnka þennan mun — og auðvelda gagnasöfnun og gæðastjórnun á hagkvæman hátt sem hentar jafnvel minnstu framleiðendum.

Við erum IORDEN

Sunna Guðlaugsdóttir

Framkvæmdastjóri
Áhersla

Viðskiptaþróun, tengslamyndun og stækkun.

Hlutverk í IORDEN

Leiðir samskipti við framleiðendur og hjálpar til við að sannreyna lausnina við raunverulegar framleiðsluaðstæður.

Margeir Arndal

Rekstrarstjóri
Áhersla

Rekstur, vöruþróun og notendamiðuð hönnun.

Hlutverk í IORDEN

Mótar lausnina og tryggir að hún endurspegli raunverulegar þarfir smærri matvælaframleiðenda.

Vertu með frá upphafi

Við erum að þróa fyrstu útgáfu IORDEN og leitum að matvælaframleiðendum til samstarfs.

Markmið IORDEN er að auka aðgengi smáframleiðanda matvæla að nútímatækniþróun og hjálpa þeim að tryggja gæði framleiðslunnar án þess að slíta sér út í pappírs- og excel vinnu.