Tækniþróunarsjóður hefur úthlutað styrkjum úr Fræ og Þróunarfræ í annarri úthlutunarlotu ársins 2026. Alls voru 15 verkefni styrkt og nam heildarupphæð úthlutunarinnar 28,5 milljónum króna.
Við hjá IORDEN erum þakklát fyrir að vera á meðal styrkþega og hljótum 2 milljónir króna í Fræ-styrk. Fræ veitir undirbúningsstyrki til ungra frumkvöðlafyrirtækja og er sniðinn að verkefnum á hugmyndastigi eða á frumstigi í þróun afurðar.
Styrkurinn nýtist okkur í áframhaldandi þróun lausnarinnar fyrir litla matvælaframleiðendur. Við þökkum Tækniþróunarsjóði fyrir traustið og hlökkum til að halda áfram að byggja upp IORDEN.