Það var nærandi að standa við hlið ungra og hæfileikaríkra frumkvöðla frá yfir 30 löndum. Við eyddum vikunni í að kynna IORDEN, kynnast jafningjum víðs vegar að úr Evrópu og ræða hugmyndina okkar við skörpustu frumkvöðla álfunnar. Verðlaunakvöldið var góð áminning um hversu mikill kraftur býr í frumkvöðlum Evrópu og hversu langt lítil hugmynd frá Íslandi getur ferðast.
Við þökkum JA Iceland – Ungum frumkvöðlum og KLAK – Icelandic Startups kærlega fyrir að taka okkur með í þetta ferðalag. Allt frá Gullegginu til Gen-E hafa þau staðið þétt við bakið á okkur.
Ríga var frábær upplifun og við tökum meðbyrinn með okkur inn í sumarið. Með styrk frá Nýsköpunarsjóði Námsmanna (Rannís) vinnum við nú að rannsóknum í sumar, mótum hvernig IORDEN virkar í framkvæmd og færumst sífellt nær því að setja lausnina á markað. Við erum spenntari en nokkru sinni fyrr og höldum áfram að byggja IORDEN til að hjálpa litlum matvælaframleiðendum að takast á við gæðastjórnun.