Lokakeppni Gulleggsins 2026, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands, fór fram í hátíðarsal Grósku 26. febrúar, þar sem tíu metnaðarfull teymi kynntu hugmyndir sínar fyrir þéttsetnum sal og dómnefnd skipaðri fulltrúum bakhjarla keppninnar. IORDEN var þar á meðal, með lausn sem nýtir gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda og bæta gæðaeftirlit hjá smærri matvælaframleiðendum.

Við lentum í öðru sæti keppninnar og hlutum 1.000.000 kr. í verðlaun frá Landsbankanum. Að auki hlutum við sérstök verðlaun frá Ungum frumkvöðlum – Junior Achievement Iceland: tækifæri til að taka þátt í GEN-E nýsköpunarkeppninni í Riga í Lettlandi, þar sem við fáum að mæta alþjóðlegum jafningjum og fjárfestum og reyna á hugmyndina okkar á stærra sviði.

Sigurvegari Gulleggsins 2026 var teymið Affineva, með líftæknilausn í greiningu og meðhöndlun sjúkdóma, en í þriðja sæti lenti Norrstone með stafrænt vistkerfi fyrir skartgripi. Við óskum þeim og öllum þátttökuteymum innilega til hamingju og hlökkum til að þróa IORDEN áfram — næst á sviðinu í Riga.