← Aftur í fréttir

Hringiðu lýkur

Í síðustu viku lauk þátttöku okkar í Hringiðu 2026 formlega með lokaviðburði í Hörpu.

Á sviðinu í Björtuloftum fengum við fimm mínútur til að kynna IORDEN fyrir fjárfestum, gestum og dómnefnd en í henni sátu Hrönn Greipsdóttur hjá Nýsköpunarsjóðnum Kríu og Jenný Ruth Hrafnsdóttur hjá Crowberry Capital.

Auk kynningarinnar sjálfrar fengum við mikið út úr hraðlinum — ekki síst þjálfunina í Impact Business Modeling System™ (IBMS) hjá Richard Engström. Aðferðafræðin hefur hjálpað okkur mikið að gera sjálfbærniáhrif IORDEN mælanleg með skýrum áhrifamælikvörðum og áætlun sem tengir jákvæð umhverfisáhrif beint við viðskiptamódelið okkar.

Dagurinn endaði á spjalli og tengslamyndun úti á svölum Hörpu í glampandi sól. Virkilega góður endir á sex vikna törn þar sem við höfum unnið markvisst að því að skerpa á stefnu og framtíðaráætlun IORDEN. Kærar þakkir til KLAK teymisins fyrir frábæra dagskrá og samfylgd síðustu sex vikurnar.