Við tökum þátt í Hringiðu 2026, sex vikna viðskiptahraðli á vegum KLAK – Icelandic Startups sem er sniðinn að þörfum sprotafyrirtækja með grænar lausnir. Allt að tíu sprotaverkefnum á fyrstu stigum er veittur aðgangur að breiðu tengslaneti leiðbeinenda úr atvinnulífinu og markvissri þjálfun í uppbyggingu sprotafyrirtækja.
Markmið hraðalsins er að hjálpa teymum að móta viðskiptamódel sitt, þróunaráætlun og næstu skref — og við lok hans fá þátttakendur tækifæri til að kynna fyrirtæki sín fyrir fjárfestum og öðrum lykilaðilum í grænu og sjálfbæru viðskiptalífi. Við erum í hópi sjö teyma í ár, ásamt Ratatag, Soil Lagoon, Thermal Beets Records, Loopable, Araxni og E-Lísu.
Við hlökkum til að nýta næstu vikur til að skerpa á stefnu IORDEN og undirbúa okkur fyrir kynningu í lok hraðalsins.