IORDEN bar sigur úr býtum í Hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og Landsbankans, sem fram fór í Landsbankanum helgina 9.–10. janúar. Þar komu háskólanemar víðs vegar að af landinu saman og unnu að lausnum á raunverulegum áskorunum frá bakhjörlum Gulleggsins, þar á meðal ELKO, Háskólanum í Reykjavík, KPMG, JBT Marel og Reykjavíkurborg.

Við tókumst á við áskorun frá JBT Marel sem sneri að því hvernig smærri matvælaframleiðendur geti nýtt sjálfvirknivæðingu og snjallar tæknilausnir til að efla gæði og auka skilvirkni í framleiðslu. Lausnin sem við kynntum samþættir gögn frá ólíkum vélum og skynjurum og gerir skýrslugerð sjálfvirka — sem léttir verulega á handavinnu við gæðaeftirlit og vottanir, sem er einn stærsti þröskuldur fyrir smærri framleiðenda í dag.

Sigurinn tryggði okkur 150.000 kr. verðlaunafé, sérfræðiráðgjöf frá JBT Marel og sæti í lokakeppni Gulleggsins 2026. Við kynnum hugmyndina okkar frekar í Lokakeppni Gulleggsins sem fram fer í Grósku 26. febrúar.