Lóu nýsköpunarstyrkjum fyrir árið 2026 hefur verið úthlutað til 21 verkefnis víðsvegar um landið, samtals 100 milljónum króna.

Við hjá IORDEN erum afar þakklát fyrir að vera á meðal styrkþega og hljótum 9 milljónir króna, sem er næsthæsta styrkveiting úthlutunarinnar. Margeir Arndal er skráður fyrir styrknum.

Styrkurinn gerir okkur kleift að þróa lausnina okkar áfram fyrir litla matvælaframleiðendur og færa hana nær því að verða tilbúin til notkunar hjá framleiðendum um allt land. Við þökkum fyrir traustið og hlökkum til að byggja áfram upp IORDEN.