Nýsköpunarsjóður námsmanna hefur lokið úthlutun fyrir sumarið 2026. Sjóðurinn hafði að þessu sinni um 83,9 milljónir króna til úthlutunar og bárust alls 234 umsóknir fyrir 954 mannmánuði — 58 verkefni hlutu að lokum styrk.

IORDEN var á meðal verkefnanna sem hlutu styrk, undir heitinu „IORDEN – stafrænn gæðastjóri í matvælaframleiðslu“, unnið í samstarfi við JBT Marel. Verkefnið hlaut 3.060.000 kr. í styrk, sem nýtist okkur til að halda áfram að þróa lausnina fyrir smærri matvælaframleiðendur.

Við þökkum Nýsköpunarsjóði námsmanna og Rannís fyrir stuðninginn og hlökkum til að nýta styrkinn til að taka næstu skref í þróun IORDEN.